 | Skráðu þig í Agile hópinn
Ef þú skráir þig getur þú strax byrjað að taka þátt í Agile samfélaginu. |
Opið samfélag
Við í Agile hópnum erum staðráðin í gera allt sem í okkar valda stendur til þess að breiða út fagnaðarerindið
. Í því felst bæða að upplýsa áhugasama og einnig að virkja þá sem hafa kynnt sér Agile hugmyndir og aðferðir. Með því að opna http://agile.is alveg upp á gátt, þ.e. gefa öllum sem skrá sig möguleika á að bæta, breyta og eyða efni, viljum við stuðla að þróun samfélags þar sem leikmenn og lærðir fá tækifæri til þess að tjá sig.
Reglur um notkun agile.is
Reglurnar eru einfaldar. Allir mega gera allt sem þeir vilja svo lengi sem það stuðlar að betra Agile samfélagi, það er:
- Bæta við efni: Búa til nýjar síður eða eða breyta texta á síðum. Setja inn "comment" eða fréttir.
- Breyta efni: Breyta eða færa texta milli síðna eða færa síður á nýja staði.
- Eyða efni: Ef efni er tvítekið eða er einfaldalega "rangt" ekki hika við að eyða síðum eða texta.
Taktu þátt og skráðu þig í dag
.
Tólið
Tólið sem þessi vefur er smíðaður í heitir Confluence og er Wiki kerfi
en þetta er líklega eitt besta samfélagstólið sem gert hefur verið.
Confluence er upplýsingatré þar sem allt byrjar með upphafsíðu (Home) en undir henni eru smíðaðar undirsíður (börn) og síðan geta undirsíður haft undirsíður sem síðan geta haf undirsíður o.s.frv. Allar síður er "sjálfstæðar" einingar sem innihalda sitt eigið efni en það skiptist í:
- Efnið síðunnar sjálfrar (textinn sem þú ert að lesa)
- Viðhengi (attachments)
- Comment
Confluence notendhandbókin
.