Agile Software Development
eða Agile er hugmyndafræði þar sem hugbúnaðarþróun, vöruþróun, verkefnastjórnun og almenn stjórnun renna saman. Það má segja að Agile tengi saman hugbúnaðarþróunar- og viðskiptasviðið. Í Agile aðferðafræði er aðal áherslan lögð á útkomu hugbúnaðarverkefna en ekki ferlið sem notað er í verkefnum.
Öll Agile aðferðafræði gengur út á fáar einfaldar reglur sem fylgt er til hins ítrasta. Í flestum þungavigtargæðakerfum er búið að setja upp svo mikið af flóknum reglum að eina leiðin til þess að koma einhverju í verk er að sniðganga gæðakerfið. Hægt er að bera saman Agile og þungaviktaraðferðir á sama hátt og samfélög sem annars vegar banna allt fyrst og leyfa síðan smátt og smátt, og hins vegar þau sem leyfa allt fyrst og banna síðan smátt og smátt. Hægt er að gera sér í hugarlund hvernig upplifun og viðhorf borgarana til samfélagsins er gjörólíkt. Aðferðafræði sem byggir á Agile á að vera "rétt nógu fullnægjandi" (barely sufficient).
Í Agile aðferðafræði er gengið út frá því sjónarmiði að vinna í hugbúnaðarverkefnum sé vöruþróun en ekki framleiðsla. Þetta sjónarmið gjörbreytir rekstri, verklagi og hugmyndum fólks í hugbúnaðarverkefnum.
Sagan
Helgina 11-13 febrúar árið 2001 komu saman í skíðaskála í Utah 17 aðferðafræðispekingar. Þetta voru bæði aðferðafræðihöfundar og aðrir áhrifavaldar sem höfðu áttað sig á að þeir deildu, að einhverju leiti, sameiginlegum hugmyndum um hvernig reka ætti hugbúnaðarverkefni. Þessar sameiginlegu hugmyndir voru af öðrum kallaðar "lightweight" en margir af sautjánmenningunum voru ósáttir við þá nafnagift. Það varð því þeirra fyrsta verk um helgina að finna nýtt nafn til þess að lýsa hugmyndunum. Nafnið sem þeir komu sér saman um var "Agile Software Development". Enn fremur setti hópurinn saman hugmyndafræði í tveimur þáttum:
Þannig varð til samkomulag milli höfundanna um ákveðnar grunnhugmyndir þótt þeir hefðu ekki áhuga á að fara lengra, þ.e. smíða sameiginlega aðferðafræði (t.d. Agile Unified Process).
Mikilvægt er að hafa í huga að að Agile er hugmyndafræði en ekki aðferðafræði. Agile er regnhlífarhugtak fyrir aðferðafræði eins og Scrum, Agile Project Management, eXtreme Programming, Crystal, Lean Software Development, DSDM og Feature Driven Development.