Agile hópurinn er félag áhugafólks um beitingu Agile hugmynda í hugbúnaðarverkefnum. Það er trú hópsins að lykilinn að vel heppnuðum hugbúnaðarverkefnum sé beiting á Agile aðferðafræði eins og Scrum, Agile Project Management, eXtreme Programming, Crystal, Lean Software Development, DSDM og Feature Driven Development
Félagið vill höfða til allra hagsmunaaðila í hugbúnaðarverkefnum hvort sem um er að ræða hugbúnaðarsérfræðinga, ráðgjafa, verkefnastjóra, styrktaraðila eða viðskiptavini.
Markið Agile hópsins eru eftirfarandi:
- Kynna Agile hugmyndafræðina á Íslandi.
- Læra hvert af öðru.
- Fylgjast með þróun Agile hugmynda.
Agile hópurinn var stofnaður 5 nóvember 2005, í Tæknigarði Háskóla Íslands, af Daða Ingólfsyni, Hlöðver Tómassyni, Oddi Benediktssyni, Pétri Orra Sæmundsen og Sverri Jan Norðfjörð.